Persónuvernd

Hvaða upplýsingum er safnað?

Við skráningu eru skráð: nafn og kennitala úr rafrænum skilríkjum, netfang, símanúmer, bolastærð, staða á vellinum og athugasemd ef þú skrifar hana. Greiðsluupplýsingar fara beint til greiðsluþjónustunnar Teya og eru aldrei vistaðar hjá okkur.

Til hvers?

Kennitalan staðfestir hver þú ert og ræður í hvaða árgangslið þú lendir. Netfang og sími eru notuð til að senda þér upplýsingar um mótið. Nafn þitt birtist á liðslista mótsins, sýnilegt öðrum sem hafa auðkennt sig.

Hversu lengi?

Skráningargögnum er haldið á meðan mótið stendur yfir og í bókhaldslegum tilgangi eftir það. Þú getur afskráð þig hvenær sem er undir „Mín skráning“.

Fyrirspurnir

Sendu tölvupóst á [email protected] ef þú vilt fá gögnin þín afhent eða eydd.